Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Glühwein, glögg og jólaglögg

Glögg, eða jólaglögg eins og hún heitir hér á Íslandi, má upprunalega rekja til hins þýska glühwein sem breiðst hefur um heiminn. Englendingar kalla glöggina annað hvort glühwein eða jólapunch en eflaust hafa fáir haldið heiðri glöggarinnar jafn hátt og Svíarnir.

Á 19. öldinni var glöggin talsvert daufari en við eigum að venjast í dag. Rauðvín var þá þynnt út til helminga á móti vatni eins og sjá má í einfaldri uppskrift Gustava Björklund frá 1880 með rauðvíni, vatni, sykri, negul og kanil. Helsti munur á glögg og glühwein er sá að glühwein inniheldur oftar en ekki nellikur og jafnvel vanillustangir. Sömuleiðis er sykri oft skipt út fyrir hunangi í glühwein. Hvoru tveggja er svo oft lagað með sítrónu eða appelsínuberki til að fá örlítið beiskara bragð.

Helsta ástæða þess að glöggin varð sterkari með árunum er sú að menn komust fljótlega á 20. öldinni að því að brenndur sykur bætti bragðið í glögginni. Menn hófu því að leggja sykurinn í mót ofan á drykknum, kveikja í honum og láta áfengið þannig brenna sykurinn áður en honum var blandað saman við. Til þess að þetta sé hægt verður áfengismagnið að vera í það minnsta 20%. Hins vegar hverfur talsvert af áfenginu við að drykkurinn sé hitaður á þennan hátt og nú á dögum brenna menn ekki sykurinn svona lengur. Engu að síður voru menn nú orðnir vanir því að styrkja glöggina og gera það enn þann dag í dag. Glöggin á því lítið sameiginlegt við glühwein lengur.

Á netinu má finna fjöldan allan af glögguppskriftum og sama má segja með sænsk heimili. Sjálfsagt er þar ein uppskrift fyrir hverja fjölskyldu. Uppistaðan er samt sem áður alltaf sú sem Gustava Björklund notaði 1880. Rauðvínið er hitað í potti ásamt vodka eða kláravíni og vatn er oft sett til að drýgja sterka vínið, sérstaklega ef notað er sterkara áfengi en 40%. Sykurinn er síðan leystur upp í víninu og negulnöglum og kanilstöngum er bætt út í. Margir taka hýðið af appelsínuberki og bæta því sömuleiðis út í. Þetta er svo látið malla við lágan hita og að klukkustund liðinni er kominn tími til að smakka. Nú má bæta við rauðvíni, sykri, áfengi eða kryddi eftir smekk og bragðbæta síðan með t.d. púrtvíni, madeira, cognaci, armagnac eða calvados. Að lokum er glögginni hellt í litla leirbolla á stærð við mokkabolla og möndlur og rúsínur eru bornar fram í skálum sem hver og einn setur út í eftir smekk. Hér á Íslandi hefur sá siður tíðkast frekar að bera glögg fram í vínglasi með piparkökum. Hver og einn finnur sína aðferð og sína uppskrift, aðalatriðið er að allir njóti vel.

Að lokum langar mig til að benda á einfalda uppskrift fyrir þá sem hafa aðstöðu til. Í apótekum í Skandinavíu fæst "Tinctura aromatica". Hellið saman 3 lítrum af rauðvíni á móti ½ líter af vodka og ½ líter af vatni. Setjið 2-300 g af sykri út í og u.þ.b. 1 dl. af tinctura. Leysið upp sykurinn og látið malla í a.m.k. hálftíma og njótið vel. Þessi aðferð er mjög almenn í Svíþjóð.

Uppskrift af jólaglöggi

jolaglogg uppskrift

Látið malla, ekki sjóða, við meðalhita í klukkutíma. Kælið í hálftíma og sigtið svo frá. Hitið aftur og berið fram með rúsínum og hesslihnetum eða piparkökum. Í stað ákavítis má nota vodka. Mörgum þykir gott að bragðbæta með púrtvíni, cognaci, armagnac eða Grand-marnier.

Verði ykkur að góðu.

 

 

 


Þessi fróðleiksmoli er í boði Cocktail.is veisluþjónustu

Frekari upplýsingar : http://www.cocktail.is

afmæli afmælisveislur asískurmatur austurlenskthlaðborð austurlenskurmatur

árshátíðir brúðkaup brúðkaupshlaðborð brúðkaupsskipulagnin brúðkaupsvefur

brúðkaupsveislur brúðkaupsþjónusta canapé cocktail.is einkasamkvæmi

fermingarvefur fermingarveislur félagsheimili félagsheimili* framreiðslumaður

framreiðslumeistari framreiðslumenn fundahald fundahald* fundarhald

fundarhald* fundarsalir fundarsalir* fundarsalur fundarsalur* fundasalir

fundasalir* fundasalur fundasalur* fundir fundur giftingarveislur

glögg grillkerra grillkerran grillmatur grillréttir grillvagn grillveislur

grillveisluþjónusta grillþjónusta gæsapartý hanastél heimahús* heimahúsaveislur

hlaðborð hópmatseðlar ítalskthlaðborð ítalskurmatur íþróttahátíðir íþróttamót*

jólaglögg jólahlaðborð kínamatur kínverskirréttir kínverskurmatur kokkar kokkur

kokteilar kokteilblöndur kokteilboð kokteildrykkir kokteilmatur kokteilpartý kokteilpinnar kokteilveislur mannamót* mannfagnaðir matarveislur matreiðsla matreiðslumaður matreiðslumeistari matreiðslumenn matur mexíkanskurmatur mexíkómatur mexíkóskthlaðborð mexíkóskurmatur móttökur nýársfagnaðir ostapinnar partý partýborð partýgrill partýhlaðborð partýmatur partýþjónusta pinnamatur pottréttir ráðstefna* ráðstefnuhald* ráðstefnur* ráðstefnusalir* ráðstefnusalur* salaleiga salir*

salur samkvæmi snittur starfsmannapartý starfsmannaveislur steggjapartý

stúdentaveislur suðrænirréttir uppskriftir uppvörtun útigrillþjónusta útihátíð* útihátíðir*

veisluhald veislumatur veislur veisluráðgjöf veisluríheimahúsi

veisluríheimahúsum veislusalir veislusalir* veislusalur veisluþjónusta veitingar

veitingasalaleiga veitingasalir* veitingasalur veitingaþjónusta villibráð

villibráðahlaðborð villibráðaveislur vín vínkynningar vínráðgjöf vínseðill

vínsmökkun vínuppskriftir vínveislur vínþjónar vínþjónn vínþjónusta þema*

þemakvöld* þjóðarmatur* þjónar þjónusta* ættarmót



Netspjall