Fermingar – Annar þáttur
Kæru veislugestir.
Nú þegar fermingartíminn er alveg að bresta á er rétt að draga andann og slaka aðeins á. Fermingin er mörgum kær stund og er gott að hafa það í huga þegar boðskortin berast.
Á páskum og á jólum eiga flestir stutt frí og vilja reyna að njóta þess sem best. Sumir vilja bara hanga í náttsloppnum uppi í rúmi eða liggja í sófanum og lesa bók eða horfa á sjónvarpið. Engu að síður eru þetta þeir tímar þegar við erum líklegust til að umgangast vini og fjölskyldu og þess vegna mætum við í veislur. Fermingarveislur eru tíðar um páskana og dálítið öðruvísi en aðrar veislur því eftir að hafa verið veitingamaður í rúm 20 ár getur greinarhöfundur vitnað um margar fermingarveislurnar þar sem meiri tími fer í að líta á klukkuna en að njóta augnabliksins.
Margir foreldrar fermingarbarna hafa mikið fyrir því að gera sem mest og sem best úr þeim efnum og aðstæðum sem eru fyrir hendi. Einhverjir eru í kvíðakasti síðustu vikurnar og finnst allt skipulag vera að fara úr böndunum. Loksins þegar að stundinni kemur er nauðsynlegt að allt gangi vel, að allir brosi og eigi góða stund, það er oft eina ósk foreldranna.
Unglingurinn sjálfur er jafn misjafn og þeir eru margir. Sumir upplifa helgistundina, aðrir bíða bara eftir pökkunum en flestir eru þó upp með sér í langan tíma yfir því hverjir létu sjá sig og hvað þeir færðu þeim í veraldlegum gjöfum en ekki síst í hvatningarorðum fyrir framtíðina. Unglingur á tímamótum er nefnilega oft móttækilegri fyrir góðum ráðum en á öðrum dögum. Á fermingardaginn er hann kominn í fullorðinna manna tölu eða alla vega eitthvað í þá áttina.
Höfum því í huga þegar næsta boðskort dettur inn um lúguna og þegar í fínu fötin er komið að brosa, slaka á og njóta. Njótum þess að hitta vini og kunningja, leyfum okkur að slaka á og leyfum fermingarfjölskyldunni að eiga góðan dag með okkur.
Svo fá veislugestirnir líka alltaf svo góðar veitingar!
Þessi fróðleiksmoli er í boði Cocktail.is veisluþjónustu
Frekari upplýsingar : http://www.cocktail.is
