Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Kæru brúðhjón – eða er þetta veislan mín?

Jæja, þá er komið sumar og brúðkaup í vændum, allir hinir hvíla sínar veislur, engin uppátæki í fyrirtækjum, engin ríúníon og furðu lítið um afmæli enda eru þeir sem eiga afmæli á sumrin fyrir löngu búnir að gefast upp á því að bjóða gestum. En brúðkaupsveislur eru í algleymingi enda flestir betri veislusalir uppbókaðir alla laugardaga í júní, júlí og ágúst með margra mánaða og jafnvel árs fyrirvara.
Boðskortið er væntanlega farið út núna og það styttist í stóru stundina. Búið að panta kirkjuna og prestinn og kjólinn. Hvað er þá eftir?

Ég ætla að nefna hér nokkur atriði sem eiga það til að gleymast í brúkaupsundirbúningi.

Brúðkaup2

Í fyrsta lagi, það sem skiptir mestu máli og má aldrei hvika frá er að vita að íslenska þjóðin skiptist í tvo jafn stóra og ólíka hópa. Það skiptir ekki máli hvað þið settuð á boðskortin... „látið vita ef þið komið...” „komið ekki...” „hvort þið ætlið að koma eða ekki...” Það les enginn boðskort hvort eð er til enda.

„Elskan, það er brúðkaup hjá Jóni og Gunnu þarna einhvern tíma í sumar...” og svo fer kortið á ísskápinn.

Staðreyndin er sú að hálf þjóðin lifir í þeirri trú að hún þurfi ekki að láta vita nema hún ætli að mæta, hinn helmingurinn ef hún ætli ekki að mæta. Þess vegna er bara ein megin regla sem tengist öllum veislum og brúðkaupsveislum sérstaklega: Að hringja út! Ég hef því miður séð 20-40% afföll í veislum þar sem var „pottþétt tala”, jafnvel systkinin duttu út; „æ ég hélt að þú vissir það að við fengum ekki pössun”. Hringið út í alla með viku fyrirvara og fáið staðfestingu. Hvort sem þið sjáið um veisluföngin sjálf og ég tala nú ekki um ef þið kaupið veitingar að þá verðið þið að hafa rétta tölu, ekki treysta neinum. Ég sá einu sinni tvöfalt afmæli hjóna þar sem hans megin var fullsetið en hennar megin var hálfsetið, samt var búið að raða til borðs. Þau hringdu ekki út.

Eigum við að raða til borðs elskan?
Já hiklaust, en ekki í sæti. Þið verðið að muna að dagurinn er ykkar en veislan er gestanna. Þið eigið að sjálfsögðu að njóta dagsins og eruð í aðalhlutverki en allt sem tengist veislunni, sætaskipun, matur og vín verður að vera fyrir gestina, ekki fyrir ykkur. Ef ykkur finnst t.d. rauðvín vont, ekki sleppa því, gestirnir verða sárir og sjá jafnvel eftir þessum fínu pökkum. Drekkið og borðið það sem ykkur langar þegar þið eruð tvö en veitið vel í veislunni, veitið það sem almennt fellur í alla. Sömuleiðis er varasamt að skipta upp hópum. Vinir vilja sitja saman, fjölskyldur vilja sitja saman. Þeir sem ykkur finnst „fyndið” að setja saman getur skapað reiði annarra. Raðið hópum, vinum, ættingjum, fjölskyldu saman á borð en ekki endilega raða til sætis. Þá fara menn að spyrja, „af hverju er ég á endanum?” Leyfið þeim að velja sæti við borðið sjálf, fyrstur kemur, fyrstur fær.

Verður brúðkaupsveislan mín skemmtileg?
Já, ef þú vilt. Lykillinn að því að gera brúðkaupsveislu leiðinlega er að brúðhjónin hangi saman alla veisluna, sitji við háborðið og standi aldrei upp. Ég hef séð þetta sorglega oft og segi því  alltaf við nýgift, um leið og þið komið inn eftir að gestirnir eru búnir að vera í 40 mínútur í fordrykk og þið birtist svo allt í einu, þá kemur þögn. Eina leiðin til að rjúfa þessa þögn er að skilja...  Þið verðið að blanda geði við gesti sitt í hvoru lagi. Það er nefnilega þannig að vinir ykkar halda að þið viljið bara vera með fjölskyldunni og fjölskyldan heldur að þið viljið bara vera með vinum ykkar. Svo eru það hinir sem halda að þið viljið bara vera saman.. sem eru flestir.

Enginn þorir að trufla ykkur þegar þið eruð saman og allir sitja og þegja. Um leið og þið labbið um sitt í hvoru lagi þá kemur fólk til ykkar, vinir og fjölskylda og klappar á öxlina... „jæja, hvað segirðu þá kallinn minn / elskan mín?” Fáið ykkur síðan fyrst af matnum og borðið lítið og á meðan gestirnir fá sér, labbið þá um, aftur sitt í hvoru lagi, og fáið þannig eðlileg viðbrögð fjölskyldu og vina. Enginn getur verið eðlilegur við nýgift hjón, enda þekkja flestir bara annan aðilann, er það ekki? En örvæntið ekki, þið eigið eftir að eyða ævinni saman, gefið gestunum því þennan eina dag og hann verður þess vegna enn meira í minningunni ykkar dagur.

Næsta mál er dálítið praktískt.
Við hin erum nefninlega alltaf í dálitlum vandræðum hvað á að gefa ykkur í brúðargjöf. Á að hringja í mömmuna eða vinkonurnar? Hvernig væri að auðvelda fólki lífið með því að gefa út óskalista? Best væri reyndar að senda með boðskortinu, eða síðar, vefslóð á ykkar síðu, bloggsíðu eða eigin brúðkaupssíðu og þar má setja inn óskalista. Þetta hafa mörg brúðhjon gert og flest sem undirritaður hefur sinnt enda fylgir brúðkaupssíða hverri veislu hjá þjónustu undirritaðs sbr. www.cocktail.is/brudkaupsvefur.htm

Svo að lokum... ekki gleyma að setja flottan penna við hliðina á gestabókinni. Þar er svo súrt að „redda” BIC á síðustu stundu!

Þessi fróðleiksmoli er í boði Cocktail.is veisluþjónustu

Frekari upplýsingar : http://www.cocktail.is

_____
Cocktail veisluþjónusta
s. 899 8994



Netspjall